Sumarblóm eru í blóma allt sumarið og eru því ákjósanleg ein og sér eða í félagi við fjölærar plöntur sem blómgast flestar í styttri tíma á ólíkum tímabilum sumarsins.
Við ræktum öll okkar sumarblóm í pottum. Það tryggir betri gæði.
Á myndunum hér fyrir neðan má sjá eitthvað af því úrvali sem við erum með á útisvæðinu okkar og í gróðurskálanum. Við ábyrgjumst ekki að allt sé til, en við eigum líka örugglega eitthvað fleira en er á myndunum.
Sjón er sögu ríkari - Verið velkomin í Flóru.
Lýsing: Bleik eða hvít stór blóm. Hæð: 30-50 sm. Aðstæður: Þarf sólríkan vaxtarstað og gott skjól. Þrífst best í þurrum, vel framræstum jarðvegi. Hentar í sumarblómabeð og blómaker.
Lýsing: Bleik, fjólublá eða hvít blóm sem líkjast blævængjum. Hæð: 30-40 sm.. Aðstæður: Mjög blómrík og harðgerð. Hentar best í hengipotta.
Lýsing: Blómin blá í júní og fram í september. Blómstrar mikið. Hæð: Hæð 15-40 cm. Aðstæður: Þarf skjól og sólríkan stað. Þrífst best í næringarríkum jarðvegi.
Lýsing: Blátt, bleikt eða hvítt fíngert hengiblóm. Mjög blómríkt. Hæð: Hengiplanta. Aðstæður: Harðgerður.
Lýsing: Bleik blóm. Hæð: 20-30 sm. Aðstæður: Harðgerð.
Lýsing: Ýmsir litir í rauðum, bleikum, fjólubláum og hvítum tónum. Mjög blómviljug. Hæð: Ýmist til með uppréttan eða hangandi vöxt. Einnig til smágerð og stórgerð afbrigði. Aðstæður: Þarf sólríkan vaxtarstað og gott skjól. Þrífst best í næringarríkum jarðvegi. Hentar í hengipotta og ker. Getur lifað veturinn innanhúss. Þolir ekki að frjósa.
Lýsing: Blómviljug og blómstrar fram á haust. Ýmsir blómalitir. Hæð: Hengiplanta. Aðstæður: Harðgerð. Þarf sólríkan vaxtarstað. Þrífst best í næringarríkum jarðvegi. Hentar vel í hengikörfur og ker.
Lýsing: Blá eða bleik blóm. Hæð: 10 sm. Aðstæður: Harðgert. Þarf sólríkan vaxtarstað eða hálfskugga. Þrífst best í næringarríkum jarðvegi. Hentar sem kantplanta í sumarblómabeð.
Lýsing: Blómkörfurnar stórar í hvítum, rauðum eða bleikum lit. Blómstrar mikið og meira ef visnuð blóm eru týnd af jafn óðum. Hæð: 20-40 sm. Aðstæður: Þarf sólríkan vaxtarstað og gott skjól. Þrífst vel í öllum vel framræstum jarðvegi.
Lýsing: Hvít blóm með gulri miðju. Blómviljug og blómstrar frameftir hausti. Hæð: Hæð 20-30 sm. Aðstæður: Harðgerð. Vindþolin. Þrífst best á sólríkum stað í rökum, næringarríkum jarðvegi.
Lýsing: Blandaðir litir í rauðum, bleikum eða hvítum tónum. Blómviljug. Hæð: 20-30 sm Aðstæður: Harðgert. Þarf sólríkan vaxtarstað eða hálfskugga. Þrífst best í næringarríkum jarðvegi. Hentar í sumarblómabeð.
Lýsing: Blómin annaðhvort einlit eða þrílit með lítilli gulri miðju. Gul, hvít, blá, bleik eða hvít. Blómviljug og blómstrar lengi. Hæð: 10-20 sm. Aðstæður: Mjög harðgerð. Vindþolin. Þrífst vel á sólríkum stað. Þolir hálfskugga. Þrífst best í næringarríkum jarðvegi. Blómstrar mikið og lengi.
Lýsing: Gul, rauðgul eða tvílit blóm, Mörg afbrigði. Hæð: 15-20 sm. Aðstæður: Þarf sólríkan vaxtarstað og gott skjól. Þrífst best í sendnum, vel framræstum jarðvegi. Blómstrar mikið.Viðkvæmt fyrir frosti.
Lýsing: Blómin mynda þúfu af litlum bleikum eða hvítum blómum. Hæð: Fíngerð og þéttvaxin hengiplanta. Aðstæður: Harðgerð. Þarf sólríkan vaxtarstað og skjól. Þrífst í vel framræstum jarðvegi. Hentar í hengipotta og ker.
Lýsing: Gul blóm í júní og langt fram eftir hausti. Hæð: Hengiplanta. 30-50 sm. Aðstæður: Þarf sólríkan vaxtarstað og gott skjól. Þrífst vel í næringarríkum jarðvegi. Notuð í hengipotta og ker.
Latneskt heiti: Dorothenanthus bellidiformis Lýsing: Blandaðir litir. Blómin opnast móti sól en lokast í skugga. Blómstrar frameftir hausti. Hæð: 10 sm. Aðstæður: Harðgert. Heillandi blóm sem ekki á sinn líka. Breiðir vel úr sér. Þarf sólríkan vaxtarstað. Þrífst vel í þurrum, sendnum jarðvegi. Hentar í sumarblómabeð.
Lýsing: Ýmsir litir í bláum, hvítum og bleikum tónum. Blómviljug Hæð: hengiplanta. Aðstæður: Harðgerð. Þarf sólríkan vaxtarstað eða hálfskugga. Þrífst best í næringarríkum jarðvegi. Hentar í hengipotta og ker.
Lýsing: Blá, rauð, bleik eða hvít blóm í sveip. Blómstrar á hangandi greinum. Hæð: 20-30 sm Aðstæður: Þarf sólríkan og hlýjan vaxtarstað í góðu skjóli. Þrífst best í léttum, vel framræstum jarðvegi. Góð í hengipotta.
Lýsing: Blómin mörg saman á stönglaendanum. Margir litir. Blómstrar frá júní og langt fram á haust. Hæð: Hengiblóm Aðstæður: Mjög sterk og best á sólríkum stað.
Lýsing: Ýmsir litir. Blómviljug. Hæð: Hengiplanta. Aðstæður: Kýs sólríkan vaxtarstað.
Lýsing: Stór blóm í rauðum, bleikum, bláum og hvítum litum. Hæð: Hangandi vöxtur. Aðstæður: Þarf sólríkan vaxtarstað og gott skjól. Þrífst best í næringarríkum, vel framræstum jarðvegi. Hentar vel í hengipotta og ker.
Lýsing: Blandaðir litir í hvítum, bleikum eða rauðum tónum. Ilmandi. Hæð: 20-40 sm. Aðstæður: Þarf sólríkan vaxtarstað. Þrífst best í vel framræstum jarðvegi. Hentar í sumarblómabeð.
Lýsing: Blómstrar mikið. Blá blóm og gráloðin blöð. Blómstrar í júní-sept. Hæð: 25 sm. Aðstæður: Harðgert. Þarf sólríkan vaxtarstað. Þrífst vel í öllum vel framræstum jarðvegi.
Blóm: Blómstrar ekki. Blaðfalleg. Tvílit blöð, græn með hvítum jöðrum. Hæð: 10 sm. Hentar sem hengiplanta í pottum og kerum eða þekjuplanta í beð. Aðstæður: Harðgerð. Þarf sólríkan vaxtarstað eða hálfskugga. Þrífst best í rökum og næringarríkum jarðvegi.
Lýsing: Blómstrar mikið. Margir litir og afbrigði. Hæð: 20-50 cm. Aðstæður: Þarf sólríkan og skjólgóðan vaxtarstað. Þrífst best í næringarríkum jarðvegi.
Lýsing: Ýmsir litir. Stór blóm. Hæð: 20 sm. Aðstæður: Þarf sólríkan vaxtarstað. Þrífst best í rökum, næringarríkum jarðvegi. Hentar í sumarblómabeð.
Latneskt heiti: Argyanthemum frutescens Lýsing: Þekktustu afbrigðin eru hvítar, bleikar eða gular körfur með gulri miðju. Einnig til fyllt og þá er miðjan í sama lit og krónublöðin. Auk þess er til afbrigði með dökkri miðju. Blómstrar mikið. Hæð: 20-50 cm. Aðstæður: Harðgerð.
Lýsing: Gul eða rauðgul blóm. Blómstrar í júlí og er í blóma langt fram eftir hausti. Blómstrar mikið. Hæð: 25-40 sm. Aðstæður: Harðgerð. Þarf sólríkan vaxtarstað eða hálfskugga. Þrífst vel í sendnum jarðvegi. Annað: Það er hægt að nota ung blöð í salöt.
Lýsing: Blandaðir litir. Blóm í hvítum, fjólubláum, bleikum og rauðum tónum. Hæð: 20-40 sm. Aðstæður: Þarf sólríkan vaxtarstað og gott skjól. Þrífst best í þurrum, vel framræstum jarðvegi. Hentar í sumarblómabeð, potta og ker.
Lýsing: Blandaðir litir í gulum, bleikum, rauðum og fjólubláum tónum. Blómríkt. Var oft kallað orkidea fátæka mannsins. Hæð: 30 sm. Aðstæður: Harðgerð og blómviljug planta. Þarf sólríkan vaxtarstað. Þrífst vel í sendnum jarðvegi.
Lýsing: Ýmsir litir i rauðum, bleikum, fjólubláum og hvítum tónum. Blómviljug Hæð: 30 - 40 sm Aðstæður: Þarf sólríkan vaxtarstað og gott skjól. Þrífst best í næringarríkum jarðvegi. Hentar í potta og ker.
Lýsing: Blaðplanta. Silfurlituð loðin blöð. Hæð: 20 sm. Aðstæður: Harðgerð. Vindþolin. Þarf sólríkan vaxtarstað. Þrífst vel í flestum jarðvegi. Blöðin silfurlituð og loðin. Stendur fram eftir hausti.
Lýsing: Ýmsir litir. Gulir, rauðir og órangs tónar. Blómstrar lengi. Hæð: Hengi eða klifurplanta. Aðstæður: Harðgerð. Þarf sólríkan vaxtarstað. Þrífst vel í næringarríkum jarðvegi. Þarf grind eða víra til að klifra. Notuð í hengipotta og ker. Annað: Bragðast svipað og radísur. Það er sniðugt að setja blóm og lauf af skjaldfléttu ofan á salat.
Lýsing: Blómin fallegar fjólubláar klukkur. Hæð: 80 - 100 sm Aðstæður: Þarf sólríkan vaxtarstað og gott skjól. Þarf stuðning. Þrífst í vel framræstum jarðvegi. Hentar í sumarblómabeð eða potta og ker.
Lýsing: Fjólubláar eða hvítar skrautlegar blaðhvirfingar. Standa langt fram á haust. Hæð: 20-30 sm. Aðstæður: Þrífst best á sólríkum vaxtarstað. Þarf næringarríkan, vel framræstan jarðveg. Þolir illa þurrk.
Lýsing: Blá, hvít eða bleik blóm í frá júní og langt fram á haust. Blómstrar mikið og lengi. Hæð: Hengiplanta. 20-50 sm. Aðstæður: Harðgerð. Þarf sólríkan vaxtarstað. Hentar í hengipotta eða sem þekjandi planta í beð.
Lýsing: Gul stór blóm. Hæð: Dvergvaxið afbrigði. Hæð 30 - 40 sm. Aðstæður: Þarf sólríkan vaxtarstað og gott skjól. Þrífst best í næringarríkum, vel framræstum jarðvegi. Hentar í potta og ker.