top of page

Rósir þurfa sól og skjól. Þær eru bestar undir suðurvegg.

Það ætti að gróðursetja allar rósir í frjóum jarðvegi og vökva vel eftir gróðursetningu.

Ágræddar rósir verður að gróðursetja djúpt, þannig að ágræðslan fari 5-10 sm. undir mold.

Fjarlægið villiskot. Þau eru venjulega ljósari og þyrnóttari en aðrar greinar á plöntunni. Þessi villiskot geta komið upp síðar og þá þarf að klippa þau.

grodursetning_2.jpg
ros.1.jpg

Klipping

Best er að klippa rósir seinnihlutann i maí, þegar það er lítil hætta á næturfrosti. Einnig má klippa þær í byrjun vetrar.

Ef plantan er mjög fyrirferðamikil getur verið gott að klippa hana mikið til að koma í veg fyrir skaða af völdum snjóþunga yfir vetrarmánuðina.

 

Eftirtalin atriði gilda um klippingu allra rósa:

1. Klippa og stytta sprota og stýra vexti.

2. Klippa skaddaðar, brotnar eða dauðar greinar í burtu.

3. Klippa greinar sem eru fyrir sterklegum aðalgreinum (flækjast í).

4. Klippa stubba og mjög gamlar greinar.

5. Klippa villisprota ef um ágrædda rós er að ræða.

Á heimasíðu Horticum menntafélags er nánari fróðleikur um klippingu og umhirðu rósa. 

bottom of page